12 October 2026

FagOrka er orðin Loxone Silver Partner!

FagOrka hefur lokið sérhæfðu Loxone-námskeiði og hlotið viðurkenningu sem Loxone Silver Partner. Við bjóðum nú upp á enn fjölbreyttari snjalllausnir fyrir heimili og fyrirtæki, þar sem lýsing, hiti, hljóðkerfi og allt annað vinna saman í einu kerfi.

Nýir möguleikar í snjallstýringu

Við hjá FagOrku höfum lokið sérhæfðu námskeiði hjá Loxone og erum nú orðnir Loxone Silver Partner.

Þetta eru spennandi tímamót fyrir okkur og mikilvægur liður í því að auka þjónustu okkar á sviði snjalllausna og hússtjórnarkerfa.

Með aukinni þekkingu á Loxone getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á heildstæðar lausnir fyrir heimili, sumarhús og atvinnuhúsnæði.

Hvað er Loxone?

Loxone er snjallt hússtjórnarkerfi sem sameinar helstu tæknikerfi bygginga í eina heildstæða lausn.

Í stað þess að nota mismunandi öpp og stýringar fyrir lýsingu, hita, gardínur og hljóðkerfi getur Loxone tengt allt saman og látið kerfin vinna sjálfvirkt.

Markmiðið er einfalt: Aukin þægindi og einfaldari stjórnun.

Hvað er hægt að gera með Loxone?

Snjalllýsing

Stjórnaðu lýsingu eftir tíma dags, birtustigi eða hreyfingu. Búðu til mismunandi ljósastillingar fyrir daglega notkun, kvöldstemningu eða movie night.

Hitastýring

Stjórnaðu hitastigi í hverju rými fyrir sig. Kerfið getur aðlagað upphitun að notkun húsnæðisins og hjálpað til við að draga úr óþarfa orkunotkun.

Hljóðkerfi

Með Loxone Multiroom Audio er hægt að spila tónlist í mismunandi rýmum og samþætta hljóðkerfið við aðrar aðgerðir heimilisins.

Sjálfvirkar gardínur

Gardínur geta stjórnast sjálfkrafa eftir sólarstöðu, birtu og hitastigi.

Öryggi og aðgangsstýring

Loxone býður upp á möguleika á snjallri aðgangsstýringu, viðvörunum og samþættingu öryggisbúnaðar.

Orkustýring

Fylgstu með raforkunotkun og stýrðu orkunotendum á hagkvæmari hátt, til dæmis með samþættingu rafbílahleðslu og hitakerfa.

Hús sem hugsar sjálft

Einn helsti kostur Loxone er sjálfvirknin.

Þegar þú yfirgefur heimilið getur kerfið sjálfkrafa slökkt á ljósum, lækkað hitastig og virkjað viðeigandi öryggisaðgerðir.

Þegar þú kemur heim tekur húsið á móti þér með réttri lýsingu og þægilegu hitastigi.

Þetta er snjallheimili eins og það á að vera – tæknin vinnur fyrir þig, án þess að þú þurfir stöðugt að stjórna henni.

FagOrka – Loxone Silver Partner

Við hjá FagOrku leggjum áherslu á að bjóða vandaðar, notendavænar og framtíðarvænar lausnir.

Sem Loxone Silver Partner bjóðum við upp á ráðgjöf, uppsetningu og forritun Loxone hússtjórnarkerfa, hvort sem um er að ræða nýbyggingar, endurbætur eða uppfærslu á núverandi kerfum.

Hefur þú áhuga á Loxone?

Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina fyrir þitt heimili eða fyrirtæki.

Hafðu samband við FagOrku og kynntu þér möguleikana!

‍

Aðrar Fréttir

Ekkert fannst.