Rafhitun

Við hjá Fagorku höfum mikla reynslu af uppsetningu varmadæla og rafhitunarkerfa, sérstaklega á svæðum þar sem ekki er aðgangur að heitu vatni. Við höfum sérhæft okkur í lausnum fyrir sumarhús og dreifbýli þar sem varmadælur, hitakútar og rafmagnshitun tryggja bæði neysluvatn og upphitun með skilvirkum og hagkvæmum hætti.

service-decoration

Hvað við bjóðum upp á

Við sérhæfum okkur í uppsetningu og stillingu á varmadælum og rafhitunarkerfum, sérstaklega á svæðum þar sem ekki er aðgangur að heitu vatni. Við höfum komið upp fjölmörgum lausnum í sumarhúsum, dreifbýli og íbúðarhúsnæði og leggjum áherslu á hagkvæmni, orkusparnað og faglega framkvæmd.

Við bjóðum upp á:
✔ Uppsetningu á varmadælum
✔ Hitakúta með varmaskiptum eða rafhitun
✔ Gólfhitun og snjóbræðslukerfi
✔ Lausnir fyrir hitaveitulaus svæði – sumarhús og dreifbýli

Hönnun & ráðgjöf

Við veitum faglega ráðgjöf og aðstoð við hönnun hitakerfa, bæði fyrir nýbyggingar og endurbætur. Með mikla reynslu af rafhitun og varmadælum bjóðum við traustar og hentugar lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.

Hvort sem um er að ræða neysluvatn, gólfhita eða snjóbræðslu tryggjum við örugga, hagkvæma og endingargóða lausn.

Afhverju velja viðskiptavinir okkur?

icon

Löggildir rafvirkjar

Reyndir og vottaðir rafvirkjar sem þú getur treyst.

icon

Áreiðanleg og góð þjónusta

Við stöndum við tímaramma og skilum vinnu okkar á réttum tíma.

icon

Reynsla og þekking

Okkar sérfræðingar hafa margra ára reynslu í faginu.

icon

Framtíðarlausnir

Við notumst við nútíma lausnir í öllum okkar verkefnum.

icon

Sérsniðnar lausnir

Við sérsníðum lausnir eftir þörfum viðskiptavinarins.

icon

Örugg og fagleg vinnubrögð

Við vinnum samkvæmt öryggisstöðlum í öllum verkefnum.

decoration

Ferlið

01.

Ókeypis ráðgjöf & tilboð

iconicon

Við metum þínar þarfir og áætlum kostnaðinn á verkefninu þínu, getum einnig gefið skuldbingarlaust tilboð.

02.

Tímasetning & framkvæmd

iconicon

Við finnum hentugan tíma og ákveðum hvenær og hvernig við framkvæmum verkið.

03.

Úttekt & skil

iconicon

Að verki loknu förum við yfir allar framkvæmdir, tryggjum að þær uppfylli gildandi staðla og pössum að við skilum verkefninu vel frá okkur.

Hafðu samband í dag!

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.

Aðrar þjónustur

Heyrðu í okkur í dag.

Við erum tilbúin til að aðstoða þig strax

decorationdecoration