Við tókum að okkur að endurnýja tvær rafmagnstöflur fyrir húsfélagið á Álfaskeiði 82 og 84. Um var að ræða gamlar járntöflur með postulínsöryggjum sem voru orðnar illa farnar og ekki lengur uppfylltu kröfur um öryggi og virkni.
Í stað þess að setja hvítan plastskáp yfir, ákváðum við að nýta gömlu töflurnar og skipta um allt innvols – sem gaf bæði faglegra og snyrtilegra útlit. Við settum upp nýjan töflubúnað, tengdum allt upp á nýtt, merktum greinilega og tryggðum þannig örugga og nútímalega lausn sem fellur vel að upprunalegri hönnun húsnæðisins.
Þrátt fyrir að verkefnið hafi verið krefjandi var það mjög skemmtilegt, og útkoman einfaldlega eins og glæný rafmagnstafla – bara í gömlu, flottu skelinni.
Veitum faglega og góða ráðgjöf!